Forritara-vænt API til að sjálfvirknivæða myndbandsgerð og vinnslu í stórum stíl.

Vinnsla myndskeiða í tölvuskýi hefur aldrei verið auðveldari! Einfalt RESTful forritsviðmót, borga-eftir-notkun verðlagning og leiðandi geta til vinnslu myndefnis. Útbúðu sniðmát í OpenShot myndskeiðaritlinum, hinu verðlaunaða frjálsa, opna myndskeiðavinnsluforriti, og breyttu þeim með API-forritsviðmótinu fyrir tölvuský. Hraðvirk, auðveld og ódýr vinnsla í skýinu.

Listi yfir eiginleika

Þú getur byggt eiginleika til vinnslu myndskeiða inn í vefsvæðið þitt eða forrit fyrir síma. Sendu myndskeiðin inn á tilvik af OpenShot Cloud API-forritsviðmóti, útbúðu þín eigin sniðmát eða breyttu þeim handvirkt í gegnum RESTful API-forritsviðmót, myndgerðu myndskeiðið, og sæktu svo niðurstöðuna aftur inn á vefsvæðið eða forritið.

OpenShot Cloud APIforritsviðmótið fyrir tölvuský er hannað til að geta keyrt á þínu eigin tölvuskýi, með því að útbúa tilvik á Amazon EC2 aðgangnum þinum. Útbúðu eitt stakt tilvik eða hleðslujafnaðu tugum netþjóna, allt eftir þörfum verkefnisins. Kvörðunin er einföld og algerlega undir stjórn þinni.

OpenShot Cloud API er einnig hægt að keyra með Microsoft Azure gagnaskýjakerfinu, þar með einnig sértækum Azure-eiginleikum á borð við 'Blob Storage' (fyrir skrár og útflutning) og 'Queue Storage' (fyrir álagsjöfnun og kerfiskvörðun).

OpenShot Cloud API er einnig hægt að keyra á Google Cloud Platform, þar með talið Google sértækum eiginleikum eins og Google Cloud Storage körfum (fyrir skrár og útflutning) og Google Pub/Sub (fyrir biðröð byggða álagsjöfnun og kerfiskvörðun).

Um það bil öll forritunarmál og stýrikerfi eru samhæfanleg við OpenShot Cloud API, þökk sé REST-væna API-forritsviðmótinu okkar. Allt sem þú þarft er hæfileikinn til að senda POST og GET á vefsíður, þá getur þú byggt eiginleika til vinnslu myndskeiða inn í forritið þitt. Þetta virkar með JavaScript, Python, Java, Ruby, C#, Bash, Android, iOS, og eiginlega hverju því sem þér dettur í hug!

Verðlagning á OpenShot Cloud API styðst við SAAS-líkan, mjög áþekkt því hvernig Amazon verðleggur tilvik netþjóna. Þú borgar einungis fyrir þær klukkustundir sem þú keyrir hvert tilvik. Stoppaðu hvenær sem er, án fyrirfram-skilgreindra kvaða. Rukkanir eru meðhöndlaðar sjálfvirkt af Amazon í lok hvers mánaðar... byggt á þeim klukkustundum sem tilvik voru í gangi. Flestir samkeppnisaðilar verðleggja eftir hverri mínútu af myndgerðum myndskeiðum, en slík kostnaðarlíkön eru mjög dýr og er erfitt að kvarða fyrir breytta notkun. Með OpenShot Cloud API, ertu með lágan, flatan taxta á klukkustund, burtséð frá því hve mörg þúsund mínútur þú ert kannski að myndgera.

Verðin byrja í $0.15 / tilviks-klukkustund (um það bil $108/mánuði USD ef í stöðugri keyrslu), það er án kostnaðar við keyrslu Amazon EC2 netþjóna.

Hagnaður af OpenShot Cloud API er notaður af OpenShot Studios, LLC til þróunar á OpenShot Video Editor, verðlaunuðum hugbúnaði til vinnslu myndskeiða. Þannig að þú ert ekki einungis að vinna myndskeið í tölvuskýi, þú ert líka að styðja við opinn og frjálsan hugbúnað, sem notaður er af fólki út um víða veröld!

OpenShot Video Editor (skjáborðsútgáfa) styður eftirfarandi stýrikerfi: Linux (flestar dreifingar), Windows (útgáfur 7, 8 og 10+), og OS X (útgáfa 10.15+). Verkefnisskrár eru einnig þverkerfissamhæfar, sem þýðir að þú getur vistað myndbandsverkefni í einu stýrikerfi og opnað það í öðru, þar með talið í OpenShot Cloud API. Öll OpenShot-eiginleikar eru í boði á öllum kerfum.

Byggt á hinu öfluga FFmpeg-bókasafni, OpenShot getur lesið og skrifað flest myndbands- og myndasnið. Til að sjá fullan lista yfir studd snið, skoðaðu FFmpeg-verkefnið. Útflutningsgluggi OpenShot er sjálfgefið stilltur á nokkur algeng snið, en með ítarlegum flipum geturðu notað hvaða FFmpeg-snið sem er.

OpenShot kemur með öflugt lykilramma-hreyfingarkerfi, sem gerir kleift að nota ótakmarkaðan fjölda lykilramma og hreyfimöguleika. Brúunarhamur lykilramma getur verið ferningslaga bezier-ferlar, línulegur eða fasti, sem ákvarðar hvernig hreyfð gildi eru reiknuð.

Spor eru notuð til að lagskipta myndum, myndskeiðum og hljóði í verkefni. Þú getur útbúið eins mörg lög og þér sýnist, til dæmis vatnsmerki, bakgrunnshljóðrásir, bakgrunnsmyndskeið, o.s.frv... Allt gegnsæi mun birta lagið/lögin fyrir neðan. Rásir er hægt að færa upp, niður eða læsa þeim.

Myndbúta á tímalínu er hægt að laga til á ýmsa vegu, til dæmis með kvörðun, utanskurði, snúningi, gegnsæi, gripi og breytingum á X,Y hnitum. Þessi eigindi má einnig hreyfa til miðað við tíma með örfáum músarsmellum! Þú getur líka notað umbreytingartólið til að breyta stærð myndbúta á gagnvirkan máta.

Yfir 400 millifærslur fylgja með OpenShot, sem gera kleift að stigdeyfa úr einum myndbút yfir í annan. Hraða og skerpu millifærslna má einnig aðlaga með notkun lykilramma (ef þörf er á). Tveir myndbútar sem skarast munu sjálfkrafa búa til nýja millifærslu.

Þegar myndbútum er raðað upp í myndskeiðsverkefni, birtast myndir á efri lögum/sporum ofan á þeim sem eru neðar. Rétt eins og í pappísstafla, hylja þessar efri því þær neðri. Og ef þú klippir í þær göt (með gegnsæi) munu neðri myndirnar birtast í gegn.

Yfir 40 sniðmát með vigurteiknuðum skjátitlum koma með uppsetningu OpenShot, sem gerir innsetningu skjátitla auðvelda og skemmtilega. Þú getur líka búið til þína eigin SVG vigurtitla, og notað þá sem sniðmát. Fljótlegt er að breyta letri, lit og texta í titlunum þínum með hjálp innbyggða titlaritilsins okkar.

Aðgerðasafnið til vinnslu myndskeiða (libopenshot) var hannað með nákvæmni í huga. Þetta gerir OpenShot kleift að stilla nákvæmlega hvaða rammar eru birtir (og hvenær). Notaðu örvalyklana á lyklaborðinu til að feta þig ramma fyrir ramma í gegnum verkefnið þitt.

Stjórnaðu krafti tímans með OpenShot! Hraðaðu og hægðu á myndbútum. Snúðu við stefnu myndskeiða. Eða stýrðu handvirkt hreyfingum á tíma og stefnu myndskeiða eins og þér hentar, með hjálp hins öfluga hreyfingakerfis sem byggist á lykilrömmum.

OpenShot er með marga góða eiginleika til hljóðvinnslu, svo sem eins og birtingu bylgjuforma á tímalínunni, eða að myndgera þessi bylgjuform sem hluta af sjálfu myndskeiðinu. Þú getur líka klofið hljóð frá myndskeiðsbútum og einnig stillt hverja hljóðrás sérstaklega.

OpenShot inniheldur margar myndrænar sjónhverfingar (og fleiri á leiðinni). Dragðu sjónhverfingu ofan á myndskeiðsbút og aðlagaðu svo eigindi hennar (sumum er hægt að stýra með hreyfingum). Aðlagaðu birtustig, litróf, litblæ, grátóna, bakgrunnsútskipti, og margt margt fleira! Saman með millifærslum, hreyfingum og tímastýringum, gerir þetta OpenShot að ákaflega öflugum hugbúnaði til vinnslu myndskeiða.

Settu þig í stellingar núna

Það er auðvelt að komast í gang! Allt sem þú þarft er skýjaþjónustuaðili (AWS, Azure, Google) og dálítil þekking á REST-vænni HTTP-forritun. Verðin byrja í $0.15 / tilviks-klukkustund (um það bil $108/mánuði USD ef í stöðugri keyrslu), og eru háð gerð tilviks. Til að setja í gang fyrsta tilvikið þitt af OpenShot Cloud API, veldu núverandi skýjaþjónustuaðila þinn:

Aðstoð og ráðgjöf

Ekki forritari? Hefurðu ekki tíma til að forrita þína eigin uppsetningu á OpenShot API-forritaviðmótinu? Ekkert vandamál! Sendu bara tölvupóst til okkar og lýstu því sem þú hefur í huga. Við erum alltaf til í að brjóta heilann um lausnir með öðrum, og ef þess er þörf, bjóðum við upp á hagstæða ráðgjöf og þjónustu.